Kynningarráðstefna um sæfiefni
Skemmdir á svifryksmæli í Vík í Mýrdal
Frá því í vor hefur Umhverfisstofnun rekið loftgæðamælistöð í Vík í Mýrdal til að fylgjast með öskufalli og síðan öskufoki vegna eldgossins í Eyjafjallajökli. Um helgina var stöðinni stolið og fannst hún út á golfvelli bæjarins í u.þ.b. kílómeters fjarlægð þar sem hún stóð. Skemmdir urðu á stöðinni við þetta og er því nauðsynlegt að flytja hana til Reykjavíkur til viðgerðar. Loftgæðamælistöðin sem hefur mælt svifryk við Raufarfell undir Eyjafjöllum, er nú í Reykjavík vegna viðhalds og kvörðunar og eru þar af leiðandi engar svifryksmælingar á Suðurlandi núna.
Lesa meira
Urðunarstaður Norðurár bs.
Umhverfisstofnun hefur unnið tillögu að starfsleyfi fyrir urðunarstað Norðurár bs. við Stekkjarvík, í landi Sölvabakka, Blönduóssbæ. Samkvæmt tillögunni verður Norðurá heimilt að taka á móti allt að 21.000 tonnum af almennum og óvirkum úrgangi á ári til urðunar. Einnig er veitt heimild fyrir að setja upp olíugeymi og þvottaaðstöðu fyrir bifreiðir og vinnuvélar sem notaðar eru á urðunarstaðnum.
Lesa meira
Alþjóðlegur dagur votlendis
Auglýsingar utan þéttbýlis
Veiðitímabil nokkurra fuglategunda hefst í dag
Veiðitímabil á öndum þ.e stokkönd, urtönd, rauðhöfðaönd, duggönd, skúfönd, hávellu og toppönd hefjast í dag miðvikudaginn 1. september. Helsingja er einnig leyfilegt að veiða frá og með deginum í dag utan Skaftafellssýslna en þar má ekki veiða helsingja fyrr en 25. september. Veiðar á svartfugl þ.e álku, langvíu, stuttnefju, teistu og lunda hefjast einnig í dag ásamt því að leyft er að veiða dílaskarf, toppskarf, fýl, hvítmáf, hettumáf, og ritu.
Lesa meira
Baðstaðir í Evrópu
Verður efnið sem þú notar löglegt eftir 1. desember?
Kynningarráðstefna um sæfiefni
Hreindýraveiðar - lokun á svæði 9
- Gæsaveiðitímabilið að hefjast
- Leyfi til neðansjávarrannsókna við Surtsey og við Hverastrýtur í Eyjafirði
- Sjálfbær nýting náttúru og menningarminja í þágu ferðaþjónustu
- Hvað er líffræðileg fjölbreytni? - Þingvallavatn
- Fréttir frá verndarsvæði Mývatns og Laxár
- Drög að landsáætlun um úrgang
- Landsáætlun um loftgæði
- Hringrás - kynningarfundur
- Eitraðir sveppir
- Leyndardómar Vatnshellis
- Visibility compared to Particulate Matter (PM10) Concentrations
- Þrif og öryggisatriði í íþróttahúsum
- Selavíkurganga með Sæmundi
- Hringrás Akureyri - Kynningarfundur
- REACH eftirlit
- Áherslur á sviði sjálfbærrar þróunar 2010-2013
- Aðalskoðun leiksvæða
- Ný gönguleið yfir Goðahraun á Fimmvörðuhálsi
- Sumarstarf
- Losun kjölfestuvatns skipa

