Tillaga að starfsleyfi fyrir Alcoa-Fjarðaál
Umhverfisstofnun auglýsir tillögu að starfsleyfi fyrir álver Alcoa-Fjarðaáls sf. Tillagan mun liggja frammi ásamt umsóknargögnum á skrifstofu Fjarðabyggðar, Hafnargötu 2, Fjarðabyggð, á tímabilinu 19. ágúst til 14. október 2010.
Lesa meira
Urðunarstaður Norðurár bs.
Umhverfisstofnun hefur unnið tillögu að starfsleyfi fyrir urðunarstað Norðurár bs. við Stekkjarvík, í landi Sölvabakka, Blönduóssbæ. Samkvæmt tillögunni verður Norðurá heimilt að taka á móti allt að 21.000 tonnum af almennum og óvirkum úrgangi á ári til urðunar. Einnig er veitt heimild fyrir að setja upp olíugeymi og þvottaaðstöðu fyrir bifreiðir og vinnuvélar sem notaðar eru á urðunarstaðnum.
Lesa meira
