REACH

Velkomin á upplýsingasíðu um REACH

Efnaframleiðsla í heiminum hefur vaxið úr um 1 milljón tonna árið 1930 í ríflega 400 milljón tonn á ári og fer enn vaxandi. Afleiðingin er sú að allt í kringum okkur má finna má margvísleg efni og efnasambönd eins og t.d. í þvottaefnum, byggingarvörum, fatnaði, leikföngum og húsgögnum. Mörg þessara efna finnast einnig í lofti, vatni, jarðvegi og jafnvel mönnum og dýrum þar sem þau hafa safnast fyrir í gegnum árin. Efni geta haft hættulega eiginleika, verið ertandi, ætandi og jafnvel eitruð og hefur verið sýnt fram á tengsl ýmissa efna við ákveðna sjúkdóma.

Aukin þekking á áhrifum efna á markaði er nauðsynleg til að vernda heilsu okkar og umhverfi og þannig upplýsingar ættu að vera öllum aðgengilegar. Til að bæta úr þessu hefur ný reglugerð verið innleidd á evrópska efnahagssvæðinu sem kallast REACH. Reglugerðin tók gildi á Íslandi í júní 2008. reach-250px

REACH hefur það meginmarkmið að vernda heilsu manna og umhverfi, annar vegar og hins vegar að liðka fyrir samkeppni í efnaiðnaði og efla þróun nýrra efna á evrópska efnahagssvæðinu (EES). Reglugerðin umbyltir efnavörumarkaði í Evrópu því við innleiðingu hennar flyst ábyrgð á áhættumati efna frá yfirvöldum yfir á framleiðendur og innflytjendur.

Efnastofnun Evrópu í Helsinki sér um verklega framkvæmd reglugerðarinnar, þ.á.m. móttöku skráningargagna, mat á tillögum um prófanir á efnum og hvort skráningargögn séu fullnægjandi. Hún sér einnig um framkvæmd leyfisveitinga, fræðslu og leiðbeiningar fyrir iðnaðinn og yfirvöld. Stofnanir í hverju Evrópulandi fyrir sig hafa það hlutverk að miðla upplýsingum frá Efnastofnuninni heima fyrir, aðstoða við skráningu og hafa eftirlit með því að farið sé eftir reglugerðinni. Umhverfisstofnun sinnir þessu verkefni á Íslandi.

Þessi upplýsingasíða er gerð með það að markmiði að fyrirtæki á Íslandi geti á sem einfaldastan hátt áttað sig á hlutverkum sínum og skyldum vegna REACH. Á hlekkjunum hér til vinstri er hægt að nálgast ítarlegar upplýsingar um REACH. Spurningum sem vakna og ekki er svarað á þessari upplýsingasíðu má beina til Umhverfisstofnunar í gegnum tölvupóst (umhverfisstofnun@umhverfisstofnun.is) eða síma (5912000).

Heimasíða Efnastofnunar Evrópu

REACH reglugerðin á íslensku

 






Leit


Útlit síðu:

þetta vefsvæði byggir á eplica. eplica vefurvefur - nánari upplýsinga á heimasíðu eplica.